Aftur í námskeið

Hagnýt gervigreind, masterclass

Lýsing

Viltu læra að nýta gervigreind til að einfalda og bæta daglega vinnu?

Gervigreind er ekki lengur nýjung, hún er daglegt verkfæri sem getur gjörbreytt því hvernig við vinnum, lærum og sköpum. Á þessu hagnýta námskeiði færðu djúpa innsýn í notkun gervigreindar og hvernig þú getur notað gervigreindartól á ábyrgan og gagnlegan hátt til að einfalda verkefni, bæta vinnuferla og auka skilvirkni i í starfi og daglegu lífi.

Þú lærir hvernig á að skrifa góðar kvaðningar (e. Prompt) sem skila árangri, hvernig má forðast helstu mistök og meta hvaða verkfæri hentar best hverju sinni hvort sem þú ert að vinna í skriflegum verkefnum, tölvupósti, kennslu, markaðsefni, hugmyndavinnu, greiningum eða ritun. Einnig verður fjallað um öryggismál og ábyrga notkun gervigreindar.

Námskeiðið er uppfært reglulega og nemendur fá mánaðarleg fréttabréf um nýjungar og þróun í gervigreindarheiminum í heilt ár eftir upphaf námskeiðs.

Efnistök
  • Kynning á gervigreind og helstu eiginleikum hennar
  • Hagnýtar aðferðir í kvaðningaskrifum (promptum) til að fá skýrari og betri svör
  • Verkfæraval – ChatGPT, Claude, Perplexity og fleiri
  • Hagnýt notkun í ritun, skipulagi, greiningum og hugmyndavinnu
  • Samþætting í daglegt vinnuflæði
  • Öryggismál og siðferðileg notkun 
Hæfniviðmið
Að öðlast hagnýta þekkingu og færni til að nýta gervigreindartól á áhrifaríkan og ábyrgan hátt í daglegu starfi
Fyrirkomulag

Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni er opið í 12 mánuði frá skráningu.

Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og annað kennsluefni. 

Kennarinn er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S. 788 8805 / kennari@nemandi.is

Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson tölvukennari
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
18 klst
Mat

Þátttaka

Verð
52.000 kr

Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.

Markhópur
Öll sem vilja læra að nýta gervigreind í starfi, óháð fyrri reynslu eða tæknilegri þekkingu