Hvernig tryggjum við örugga lyfjagjöf og bregðumst rétt við þegar eitthvað óvænt gerist?
Lyfjagjöf er mikilvægur þáttur í starfi á heimilum og sambýlum fyrir fatlaða og krefst bæði nákvæmni og góðrar yfirsýnar.
Á þessu námskeiði er farið yfir helstu lyfjaflokka sem starfsfólk kemur helst að í starfi og hvernig þeir virka á líkamann.
Fjallað er um algengar aukaverkanir, hvað þarf að fylgjast með og hvernig bregðast má við ef grunur vaknar um ofskömmtun eða óæskileg viðbrögð.
Áhersla er lögð á skýra og hagnýta nálgun sem styður starfsfólk í að vinna af öryggi, með ábyrgð og með velferð skjólstæðinga að leiðarljósi.
Námskeiðið hjálpar þátttakendum að auka öryggi sitt í lyfjagjöf og styrkir faglega dómgreind í daglegum aðstæðum.
Að öðlast betri skilning á virkni og áhrifum algengra lyfja og geti framkvæmt lyfjagjöf af öryggi og ábyrgð
Að styrkja hæfni til að greina frávik og bregðast rétt við þegar þörf krefur
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 07.05.2026 | Lyf og lyfjagjöf | 13:00 | Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir |