Aftur í námskeið

Microsoft Teams

Lýsing

Viltu nýta Microsoft Teams betur í daglegum samskiptum og samvinnu?

Microsoft Teams er öflugt verkfæri fyrir samskipti og samvinnu í vinnuumhverfi.

Á þessu námskeiði færð þú leiðsögn í gegnum helstu eiginleika Teams, þar á meðal hvernig á að setja upp og aðlaga vinnusvæði, halda fjarfundi, deila skjölum og nýta spjall- og hópavirkni.

Þú lærir að setja upp og sækja viðburði í beinni útsendingu (s.s. Webinar) og hvernig þú getur virkjað vinsæl forrit og tengt þau við Teams. Einnig kynnist þú mismunandi Teams útgáfum fyrir borðtölvur, vefviðmót og snjalltæki ásamt ýmsum brögðum og brellum.

Efnistök
  • Yfirsýn yfir viðmót og helstu stillingar í Microsoft Teams
  • Uppsetning og aðlögun teymis og rása fyrir ólík verkefni og hópa
  • Samvinna í skjölum, innri samskipti og örugg miðlun gagna
  • Fundir í Teams: boðun, upptökur, stillingar og hagnýt „bestu venjur“
  • Notkun spjalls og hópa fyrir dagleg samskipti
  • Samþætting við önnur Microsoft-forrit (svo sem Outlook, SharePoint o.fl.)
  • Hagnýtar leiðir til að nota Teams sem daglegt vinnu- og upplýsingamiðstöð
  • Mismunandi útgáfur (borðtölva, vefur, app) 
Hæfniviðmið
Að öðlast hagnýta þekkingu og færni til að nýta Microsoft Teams á áhrifaríkan hátt í daglegu starfi og samskiptum
Fyrirkomulag

Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni er opið í 12 mánuði frá skráningu.

Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og annað kennsluefni. 

Kennarinn er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S. 788 8805 / kennari@nemandi.is

Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson tölvukennari
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
12 klst
Mat

Þátttaka

Verð
43.500 kr

Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.

Markhópur
Öll sem vilja bæta færni sína í notkun Microsoft Teams og nýta til að auka skilvirkni og samvinnu í starfi, óháð fyrri reynslu