Aftur í námskeið

Word I

Lýsing

Viltu læra að nýta Word á markvissan hátt í daglegu starfi?

Word er forritið sem flestir nota til að skrifa og búa til skjöl, en margir þekkja aðeins hluta af því sem það getur.

Á þessu námskeiði kynnist þú grunnatriðum í notkun Word. Þú lærir helstu skipanir, að setja upp skjöl á skipulegan hátt, vinna með texta og útlit, setja inn myndir og töflur og undirbúa skjöl fyrir prentun.

Efnistök
  • Helstu skipanir og verkfæri
  • Textauppsetning og útlitsmótun
  • Myndefni og aðlögun að texta
  • Töflur og myndrit
  • Sniðmát og prentun 
Hæfniviðmið
Að öðlast grunnfærni í Word sem nýtist í fjölbreyttum verkefnum og eykur sjálfstraust í notkun forritsins
Fyrirkomulag

Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni opið í 12 mánuði frá skráningu.

Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni. 

Kennarinn er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S. 788 8805 / kennari@nemandi.is

Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson tölvukennari
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
18 klst
Mat

Þátttaka

Verð
52.000 kr

Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.

Markhópur
Öll sem vilja styrkja færni sína í Word, sérstaklega þau sem eru að byrja eða vilja rifja upp grunnatriði