Aftur í námskeið

Word II

Lýsing

Viltu dýpka þekkingu þína á Word og vinna með flóknari skjöl?

Word II er framhald af Word I, á þessu námskeiði lærir þú að vinna með lengri og flóknari skjöl á skipulagðan og skilvirkan hátt. Þú lærir m.a. að búa til sniðmát, skipa skjölum í kafla, setja upp efnisyfirlit sjálfkrafa, nota neðanmálsgreinar og atriðisorðaskrár. Einnig kynnist þú helstu öryggisstillingum.

Með þessum verkfærum getur þú unnið fjölbreytt verkefni á fagmannlegan hátt og búið til vandaðar skýrslur í starfi, námi eða persónulegum verkefnum.

Efnistök
  • Sniðmát og textasnið
  • Uppbygging lengri skjala og skýrslna
  • Kaflaskipting og efnisyfirlit
  • Aðal- og undirskjöl
  • Neðanmálsgreinar
  • Atriðisorða- og myndaskrár
  • Sjálfvirk og handvirk uppsetning
  • Helstu öryggisstillingar 
Hæfniviðmið
Að öðlast dýpri skilning og færni í Word, til að geta unnið með umfangsmikil skjöl á skilvirkan og faglegan hátt
Fyrirkomulag

Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni opið í 12 mánuði frá skráningu.

Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni. 

Kennarinn er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S. 788 8805 / kennari@nemandi.is

Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson tölvukennari
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
18 klst
Mat

Þátttaka

Verð
52.000 kr

Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.

Markhópur
Öll sem hafa grunnþekkingu á Word og vilja þróa áfram færni sína